Saturday, March 31, 2007

hæhæhæhæhæhææhæhæ


Hæhæhæhæhæh.... hvað segiði???
Það er alltaf nóg að gera hjá mér.. kannski ég segi ykkur aðeins frá þvi :)
Ég og Rakel fórum á þriðjudaginn í hjólatúr út um allt hér í köben, út á strönd, í christianiu og fleiri staði :) Það var rosa gaman fyrir utan að ég er ennþá að jafna mig í klofinu :/ leigðum sem sagt hjól sem var ekki með nógu mjúkum hnakki!!! Við vorum rosa spenntar að fara í christianiu.. komum þarna inn fyrir og maður var búin að búa til einhverja mynd af þessu en þetta var ógeðslegt!! Einkenndist af ljótu, fullu og skrýtnu fólki. Svo byrjaði bryndís bara að taka vidjó og myndir og sonna... Þangað til einn gæji bara : NO pictures!! og allir horfðu á mig.. ég bara shit.. Rakel drullum okkur í burtu!! Rakel var svaka róleg bara en mér var ekki farið að standa á sama!! Ég var ekki alveg að finna mig þarna inni :) Það voru samt einhverjar löggur þarna sem var ágætt :) Kíktum svo aðeins niður á strönd - það á greinilega eftir að hreinsa hana soldið en það var fínt að leggjast aðeins niður í sandinn og hvíla sig (aðalega í klofinu!!)
Annars er ég að fara að kaupa mér hjól á morgun eða mánudaginn!! Nú þegar Rakel er að fara þá finnst mér betra/öruggara að vera á hjóli svona á kvöldin þegar maður er að labba þessar götur hérna.. Istegade og sonna.. t.d í gær þá var ég að koma heim um 1 leytið (um nóttina), var á röltinu bara hérna rétt hjá.. Það er sko fullt af mellum á götunum hjá istegade.. og ég á sem sagt heima rétt hjá þeirri götu! ég er að labba í mínu stutta pilsi og stutta glyðru jakka (oj.. sjáiði mig fyrir ykkur) hehe.. allavega.. þá keyrir bíll framhjá og bara kvasakvasakvasa.. segir e-ð kjaftæði við mig og ég þykist ekki heyra.. svo labba ég bara áfram og þá snýr hann við!! great.... og keyrir aftur framhjá.. örugglega að spurja how much eða e-ð :) mér fannst þetta ekki nett!!! þannig að ef ég væri á hjóli þá myndu kallarnir ekki halda að ég væri mella :)
Fór í diskókeilu í gær - það var geðveikt gaman :) tunna af bjór og fullt af liði... þegar klukkan var að verða 12 þá voru nokkrir búnir að hrinja inn á brautirnar.. hehe.. ekki ég samt sko ;) Ég var búin að sjá svaka sætann gæja þarna og Birgitta var búin að segja að ég væri aumingi ef ég færi ekki að tala við hann.. þú sérð hann aldrei aftur þannig að þú tapar engu á því sagði hún!!! ég pikkaði í hann og sagði : I think your HOT!!! Og vitiði hvað hann sagði ... hhehehe.. sagði bara thanks :) ég hélt að ég myndi springa úr hlátri..
Var að setja nokkrar myndir líka....
ehh... já ... er að fara að æfa box 2-3 sinnum í viku :) það verður gaman... bara útihlaup, armbeygjur, sipp og svo ætla ég að berja Birgittu í spað á hverri æfingu :)
Hafið það gott í páskafríinu :) ég ætla að reyna það hérna ein í köben :) love you all soooo much :) en samt á mismunandi hátt skiljiði ;)

Myndin er af hjólinu sem ég ætla líklega að kaupa!! og koma með til Íslands :)

Monday, March 26, 2007

Gleðilegt sumar :)

Sumar - sumar - sumar :)
Þá er komið sumar í köben.. veðrið svakalega gott, bara hækkandi sól og hiti!! Búið að breyta klukkunni... hún er semsagt 2 tímum á undan núna :)

Fór á föstudaginn í óperuna með Rakel og fjölskyldunni hennar.. Þetta var ástarþríhyrningur og ÞVÍLÍKT DRAMA!! Þetta var samt rosa gaman að fara svona í óperu.. Rakel sofnaði reyndar sem var mega fyndið.. Mamma hennar að bjóða okkur - rándýrt og svo sofnar skvísan bara :)

Á laugardaginn fór ég svo að hitta FH strákana.. Fórum að borða á ítölskum stað held ég.. rosalega gott.. ég hef ekkert verið mikið að fá mér nautalund og sonna hérna í danmörku, þannig að þetta var alveg draumur :) Það er ekki nema Palli bjóði okkur í mat þá fær maður allminnilegt að borða, annars er það vanalega bara kjúlli eða pítsa :) Svo fórum við á pöbb til að horfa á fótboltaleik. Danmörk - Spánn! Fínt að vera svona með strákunum og láta :) Svo var bara kíkt í townið... Fór frekar snemma heima þetta kvöld, tók á að byrja snemma og vera með svona strákum :) mikið rætt þetta kvöld um heima og geima :) takk fyrir mig strákar :)

Í gær - sunnudagskvöld var svo haldinn fundur í vinnunni.. manni bara boðið aftur út að borða :) Mikið rætt og mér að sjálfsögðu boðið að vera eins lengi og ég vill :) erfitt að finna svona klára - sæta og skemmtilega stelpu í vinnu :) þær eru sko ekki á hverju strái :) fundurinn endaði ekki fyrr en um nóttina :/ gat verið Birgitta!!!! ég ætlaði sko heim eftir matinn en það var víst ekki í boði, ætlaði líka að æla oft á tímabili.. þannig var ástandið!!

Ég og Rakel ætlum að hjóla á morgun um allann bæ.. Nú fer Rakel að fara heim og hún þarf að skoða og sonna.. það á líka að vera 16 stiga hiti held ég og sól þannig að það verður gaman að hjóla og skoða :)

Er að setja nýjar myndir inn - tjekk it out :) love you... Bryndís

p.s Heiðdís!!!!!!!!!!!! koddu í heimsókn :) ég sakna þín svooooooooooooo

Saturday, March 24, 2007

hæhæ




Smá hilsen :) Þetta er ég.. ekki gleyma mér.. ég sakna ykkar rosa mikið :) love you long time ;) Tók þessa syrpu rétt áðan bara fyrir ykkur !!!
Annars er ég að fara út að borða með FH strákunum... og DJAMMA :) ekkert nýtt sossem ;)

Thursday, March 22, 2007

bröndby




Þá er maður búinn að kíkja til bröndby.. Hitti strákana aðeins og horfði á smá æfingu :) gaman að kíkja svona e-ð annað :) Flott hjá Hannesi að hafa nafnið sitt upp á vegg hjá þessu svaka félagi !!

Ég var reyndar í sjokki í lestinni á leið til bröndby.. settist niður í lestina og tók mér blað í hönd... Terrorist!!!! OMG... hvað er að gerast.. ég las áfram.. þetta var sko á dönsku :) ég sá að það hefði sprungið strætó á österbro og það væri hryðjuverk.. ég var bara í sjokki og kom til strákana og sagði þeim alla sólar söguna :) Svo fórum ég og Tóti í missjon að leyta af blaði svo við gætum skoðað þetta betur.. þá kom í ljós að þetta var bara hryðjuverkaÆFING :)

Spurning um að læra dönskuna aðeins betur ;) vávávívá................

Annars var ég bara að kaupa dýrar díselbuxur og fæ 8 daga til að ganga í þeim og tjekka hvort þær passa ekki akkúrat :) ætla að fara að hoppa og sonna í þeim til að víkka þær aðeins svo ég þurfi ekki að hneppa frá þegar ég fer út að borða skiljiði ;)

Tuesday, March 20, 2007

púla púla...

húla púla... las grein í gær og held að ég hafi skilið hana rétt!!
Sem sagt.. það er mikilvægt fyrir óléttar konur að fá fullnægingu á meðgöngu - sem oftast! Það kemur hormóni af stað og hjálpar þ.a.l við fæðinguna - hún verður auðveldari :) Þannig að strákar.. EINA gagnið sem þið getið gert á meðgöngunni er upp í rúmi með konunni ykkar :)
Vá hvað ég hlakka til að verða ólétt ;)

Spurning hvort maður fái það oftar þegar maður er óléttur??

Hitti annars Stínu, Guðnýju Ósk, Simma og Ömmu þeirra í gær.. Rosa gaman að hitta þau :) Dagurinn endaði líka rosa skemmtilega... hmm... vil helst ekki tala um það :)

Davíð Arnar, Tóti og Heimir eru held ég komnir núna til köben.. Þarf að drífa mig að hitta á þá því debetkortið mitt var að sjálfsögðu útrunnið :/ Davíð tók nýtt með :)

ætla að heyra í Tótu :) hún kom með prins póló handa mér :) love .. Bryndís

Sunday, March 18, 2007

myndasíða

hæ.. bjó til myndasíðu sem ég á eftir að gera flottari.. farið á www.fotki.com/bryndis20
nokkrar myndir svona til að byrja með :)

djamm í gær.. smá myndir






Fór á smá djamm í gær og tók fullt af myndum... verð að fara að búa til myndasíðu!! Hitti semsagt Þórdísi og Sonju :) Þóra var líka með okkur og Edit vinkona hennar :)

Saturday, March 17, 2007

smá hér.... :)




helllú... núna er komin helgi.. púff... Þórdís komin en ég næ ekki í hana :/ allt að gerast! hey.. þessi mynd hérna er af "nýja" ungdomshúsinu sem er staðsett á radhuspladsen !!! Þetta fólki er e-ð klikkað.. það er búið að búa til þennan nýja stað til að hanga á og djamma.. það er eina sem þau gera.. Þegar ég labba þarna framhjá þá eru þau að drekka bjór og svo eru rónarnir að dansa með þeim og brosa út af eyrum því þeim finnst þetta geggjað flott :) heimsku rónar!! En það er eins og þau séu ekki einu sinni í skóla og ætlast til að fá bara allt upp í hendurnar.. ég segi bara : GET A WORK !!!! ;)
Annars er allt fínt að frétta.. veðrið er orðið þrusugott og eru stólar og borð farin að fjúka út á veitingarstöðum á strikinu og öllum hliðargötum, rosa kósý :)
Stundum sakna ég þess að hafa bílinn... en ekki oft :) Fór neblega að hitta Þóru vinkonu sem gistir hjá annari vinkonu sinni.. þurfti að taka lestina og svo metróinn.. allt í lagi.. en svo var klukkan allt í einu orðin 2 og ég bara shjet ég þori ekki alveg að labba ein út um allt og fara á lestarstöðina og sonna... þá svaf ég bara hjá þeim sem var allt í lagi en það væri helvíti fínt að geta bara sest upp í yarisinn minn og keyrt í burtu :)
Núna var ég að vakna eða um 2.. Rakel að vinna og ég þarf að fá mér að borða en það er án djóks ekkert til nema e-ð að drekka!! og ég þarf að labba niður 96 tröppur til að fara að kaupa mer e-ð og svo aftur upp 96 tröppur til að komast heim!! púff.. kannski bíð ég bara til 5 og læt rakel kaupa e-ð, nema ég verði dauð úr nærigarskorti áður :) ÉG ELSKA RÚLLUSTIGA!! ef það er rúllustigi, þá nota ég hann þó það sé mjög stutt eða svona 5 tröppur :) Mér er alltaf svo illt í rassinum ... nenni því ekki...
á hinni myndinni eru ég og Birgitta yfirmaður minn.. hún er rosa skemmtileg og náum við ótrúlega vel saman.. erum meðal annars í átaki saman..hún er e-ð að reyna að kenna MÉR ;)
nú styttist í páskana og sonna og það verður skrítið að vera alein á páskunum því Rakel verður farin og ég bara ein í herberginu :) Ég fer í mat til Birgittu og sonna þannig að mér leyðist ekkert.. svo er opið í ræktinni og sonna þannig að ég get hangið þar :) ætla að leggja mig svo ég þurfti ekki að fara niður og borða :) bæjó!!

Wednesday, March 14, 2007

En ekki hvað !!! :)

My cool celebrity look-alike collage from MyHeritage.com. Get one for yourself.



Haha.. Eruði að djóka!! ekki alveg eins falleg en kannski næstum því :)
Beyonce er kannski líkust skiljiði.. ;)

p.s... ég er hætt að reyna að tala dönsku.. fór í ræktina í morgun, ný vöknuð að sjálfsögðu og sagði vingjarnlega við ógeðslega heita, brúna, rakaða, 3.daga skeggróta gaurinn : kan jeg har en pen? og han bara : hvad siger du?.. ég leit niður mjög leið á svipinn, tók pennann og þóttist ekkert skilja HANN !!!

Tuesday, March 13, 2007

fyndið

*Brúnn *- Ef þú elskar brúnan, þá ertu fjársjóður fyrir rétta makann. Brúnir elskendur eru oft hjartahlýjir og einlægnir, viðkvæmir fyrir þörfum og þrám félaganna. Kynlíf er daglegur hlutur þar sem að þú getur ekki sagt "ég elska þig" nógu oft. Að hjúfra sig fyrir framan eldinn, ganga í rigningunni eða að grípa snjókorn með tungunni er "turn-on" fyrir brúna elskendur. Þeir þurfa nægan tíma og næði til að elskast, en tilfinningar þeirra eru svo viðkvæmar að það þarf oft ekki mikið til til að enda sambandið.

hahaha.. ef þetta er ekki e-ð :)

annars var ég bara að vakna við ógeðslega mikla túrverki :( en það er glampandi sól úti og 15 stiga hiti!!

Sunday, March 11, 2007

Sumarfílingur :)

púff... ég eignaðist sænskan kærasta í gær :) Það var rosa fínt.. hann er reyndar farinn aftur til Svíþjóðar og ég sé hann aldrei aftur.. en það er líka allt í lagi! Hann var bara heitur.. án djóks.. að sjálfsögðu var hann með rakað hár, skegg og geggjað flottur.. Talaði reyndar eins og Lína Langsokkur sem var kannski ekki alveg að virka :)

Það sem er búið að vera að gerast...ehh..
  • veðrið er orðið ótrúlega fínt.. held að það hafi verið 12 stiga hiti í dag
  • sef orðið alltaf til 4 á sunnudögum :/
  • gat hneppt gallajakkanum mínum... vúhú.. gat það síðast held ég þegar ég var með nikka eða ed.. sem er svo lang síðan að ég man það ekki skiluru....
  • sakna Brynhildar Evu mest :)
  • kann ekki að búa til myndasíðu þannig að það kom ekki myndir strax!!
  • er búin að fara út í fótbolta með krökkunum í "hverfinu" voða fínt að komast aðeins í fótbolta þó það sé bara með þeim
  • er nánast bara búin að kynnast fólki frá keflavík eða sandgerði.. weird...
  • hef aldrei á æfinni held ég labbað svona mikið eins og ég geri hér...
man ekki meir í bili.. kann ekki að taka undirlínuna þarna uppi... en vitiði .. mér finnst að Ísland ætti að senda allar feitabollur til Danmerkur.. Því það eru allir e-ð sem helthy hérna... allir að hjóla, labba, hlaupa eða e-ð! Það er t.d. enginn án djóks feitur í ræktinni sem ég er í !! pælið í því... svo ísland getur bara sent feitabollur hingað og gefið þeim hjól og bannað þeim að kaupa sér bíl.. þá væri þetta komið :) Sniðugt!!!!! :)

Jæja... það er víst londryday.. þarf að þvo skítugu fötin mín...
sé ykkur soooon
Bryndís

Friday, March 9, 2007

hello pello

ég elska nelly furtado.. lagið all good things must come to an end :)
Var að klára OC.. búin með ALLT!!! skrýtið en gaman .....

Thursday, March 8, 2007

problemmó













Þá vandast málin.. Sko þannig er að ég verð að vera háð einhverju, t.d. kóki eða soleiss... Nú þarf ég að velja og að sjálfsögðu vil ég velja það sem er hollast :) Við erum með hérna Faxe Kondi sem er ógeðslega svalandi og góður drykkur og svo erum við með hið sígilda coca light sem allir vita að er OSSOM góður! Svo er það nýji drykkurinn sem heitir coca cola Zero! Mér finnst hann bragðast alveg eins og venjulegt kók.. En spurning til ykkar ALLRA!! Hvað á ég að velja til að vera háð hér í danmörku ? Bannað að segja : Bara vatni elskan mín.. fokk that.. skiluru.. ég verð að vera háð einvhverju :)
Allt gott að frétta af mér annars.. Fer í svona WorkShop 27.mars held ég þar sem ég kem með módel og læri fullt af nýju og flottu dæmi.. þannig að ef einhver vill koma út og frá fría klippingu þá er það að sjálfsögðu velkomið :)
Var að koma heim af "fundi" með vinkonum mínum hérna.. Held að ég sé komin í klámmyndaklúbbb... fyrsta ferðin verður farin á laugardaginn í erotica shop á ISTEGADE.. ég er bara alltaf þar :) Er komin með harðsperrur að hlátri eftir þennan "fund" því það var rætt um svo margt sjúklega fyndið og ekki bætti úr sök að veitressan kínversa(vorum á kínverkum stað) var smámælt og sagði alltaf icecream og skildi ekki neitt...æji had to be there moment...
Stelpur.. ég tók eitt bíómyndamóment áðan.. eða svona þáttarmóment.. löbbuðum framhjá mcdonalds og ég fór að grenja úr hlátri :) útaf??... muniði ekki eftir Sveppa þar sem hann fer á mcdonalds og er í öllu Mc fötum og bíllinn merktur eð I´m loving it.. hehe... byður um mc kók o.s.frv. :) sagði söguna og pissaði næstum því í mig ...
jæja.. ætla að demba mér í að klára OC.. er einhver með hugmynd af nýjum þáttum sem er hægt að vera húkt af svona þegar maður er ekki á "fundi".. hehe.. þið skiljið :)
Love you all ogisslega mikið og sakna sumra ykkar líka ;)
Sjáumst.. Bryndís

Tuesday, March 6, 2007

Tölvan komin!!!









jæja.. búin að fá tölvuna sem er ekkert smá fínt :) Allt fínt að frétta af mér.. Búin að fara í skoðunarferð um köben, fara nokkrum sinnum að djamma, hafa londry day, hafa blue lagoon day, new haircut day og fullt meir!! Læt fylgja nokkrar myndir frá þessu :) Þetta er BARA gaman.. svo verður Mars svo skemmtilegur þvi það ætla svo margir að koma til köben :)
Fórum á laugardaginn niðrí bæ að djamma, á þessum tíma voru klikkuðu krakkarnir hérna í köben búnir að vera að mótmæla í nokkra daga! Ekkert smá fyndið að sjá þau e-ð grenjandi út af þessu og e-ð.. en nóg með það.. það voru löggur út um allt!!!! Líka hópar af einhverju manson liði en þau voru bara með svona lúður og voru að "ræða" saman... gerðist ekkert merkilegt.. Ég hef bara ekkert orðið var við þetta en það er svo skrítið þegar maður horfir a fréttirnar eða les blöðin þá er þetta bara eins og í Írak!! eða svipað.. engin lík samt ennþá :) Svo sama kvöld gerði ég merkilegt... ég talaði við Svertingja! alveg svarta gaura sem voru að káfa á rassinum á mér í röðinni á einhverjum bar... hehehe.. ekki hélt ég að þessi dagur rynni upp :) Fórum í partý á hótel hjá íslenskum strákum sem voru með okkur.. Rosa fjör, fórum heim um 11 næsta morgun og löbbuðum Istegade heim eins og GLYÐRUR!! Set inn fleiri myndir bráðum... þarf að læra að gera myndasíðu.. það er betra! en þetta er sem sagt herbergið okkar, tek kannski næst mynd þar sem allt er fínt :/ Stelpurnar tvær á myndinni eru Rakel sem ég bý með og Jóhanna my new friend :) Sjáumst og Heyrumst bráðum :)